Heimsókn í Sundhesta.Ester/Þóra.

Í morgun fórum við mamma í smá bíltúr, austur að Hellu.
Kíktum við fyrst í heimsókn í Áskot en þar er hún Örin mín í sundþjálfun.
Það gengur bara rosalega vel og fólkið lætur rosalega vel að henni :)
Hringdi í Jakob á föstudaginn til að kíkja hvernig Ör hefði það.. hann var svo ánægður með hana og spurði hvort að hún hefði ekki farið í sund í bænum.. en ég svarði því neitandi.. hann var alveg steinhissa.. fyrsta skiptið hennar í sundinu hafði hún nefnilega bara vaðið út í vatnið eins og hún hefði ekki gert neitt annað!
Í dag var þetta fjórði sundtíminn hennar og fór hún fimm ferðir í beinni 36 metra laug. Þegar hún fór út í fyrsta skiptið kom í konunni sem vinnur þarna "hún heldur að hún sé önd!.. fer alltaf með nefið niður í vatnið!" =D það var fyndið að sjá það.. en núna á fjórða fimmta og sjötta degi sundþjálfunar eru hrossin alveg að drepast úr hasperrum þannig að henni fannst þetta ekkert skemmtilegt í dag!.. en hún gerði sitt besta :)





Ör komin í laugina.









Komin í hitabásinn, þar eru einnig innfrarauð ljós til að mýkja vöðvana.


Ætla að fá mér YouTube svo að ég geti sýnt ykkur myndband af henni í sundinu, sett link inn á síðuna þar sem að hinir tenglarnir eru.



Eftir að við höfðum kvött bæði hesta og menn lá leiðinn niður í Þykkvabæ og að Borg. Þar hittum við Jóhann G. en eftir að Ör er búin með 20 tíma sundþjálfuna fer hún til Jóhanns, verður þar í svona 7-10 daga og eftir það verður tekin ákvörðun hvort að hún sé tilbúinn fyrir dóm. Þá verður svo tekin ákvörðun hvernig framhaldið verður.. fer hún ekki í dóm mun ég samt fara með hana til Hruna kallsins enda fín meri og með mjög góða ætt á bakvið sig.

Átti svo að fara í Bókfærslupróf í dag en þegar við mamma komum heim steinrotaðist ég!.. en það er stærðfræðipróf á morgun og ætla svo að tala við bókfærslukennarann hvort að ég megi ekki gera prófið á miðvikudaginn =P
Á morgun fer ég líka í tíma til hennar Elsu á Sólvangi.. verður gaman að sjá hvað við gerum í þeim tíma :)


Kv. Ester

Uppfærsla =PEster/Þóra.

Það er svolítið síðan að maður lét heyra í sér hérna á blogginu.. og ekki er Þóra betri ;D

Skeður ekki svo mikið hérna á Selfoss.. er komin með yfirmannastöðu á hótelinu =)
Við erum tvær sem skiptum einni vakt.. voðalega þægilegt. hef alltaf einn virkan dag í viku og svo tökum við helgarnar saman.. eins og núna um helgina eru að koma 300 manns á föstudaginn á árshátið og á laugardaginn önnur 300!..

Gengur ágætlega með hestana.. í dag kom dýralæknirinn Loksins!
Orma-og lúsasprautaði allar þrjár, svo var Skuggadís einnig örmerkt. Pantaði líka tíma fyrir hana í vélaröspun.. grunar að það geti verið eitthvað að angra hana í munninum, borðar illa en japlar mjög vel.. einnig án méla við lónseringu.. en betra að vera viss!

Byrjaði að lónsera Silju um daginn og það gekk svo vel miðað við fyrsta skipti plús að það vantar frekar mikið upp á leiðtogahlutverkið (hef verið allt of góð við litlu Silju mína=P).. en það gekk svo vel þannig að ég ákvað nú bara að skella hnakk á hana! Ekki vandamálið ;D tók því rosalega vel.. tók nokkra hringi upp á bæði hægri og vinstri.. bæði fet og brokk.. rosalega dugleg :)

Svo í dag skellti Wilma sér á hestbak :)
Náði tveim skemmtilegum myndum af henni á Silju.. tað sem að maður getur gert með þessa meri!
Ör var líklega keyrð í sund í kvöld annars fer hún á morgun :)
fer í 20 tíma!.. ekki slæmt það!.. fæ hana vonandi glaða og í flotti formi þegar ég kem tilbaka frá Svíþjóð :)

Núna er komin tími á að fara að sofa!


Kv. Ester






Wilma komin á bak! =)






En hvernig kemst ég svo niður?!






Silja að spóka sig í Kríunni.

Góðar fréttir =)Ester/Þóra.

Hérna koma smá góðar fréttir..

Byrja með hestana =P dýralæknirinn kemur vonandi á morgun til að orma-og lúsasprauta merarnar, einnig til að örmekja og dna testa skuggadís =)

Ég er komin með fastar vaktir í vinnunni =)
ég og eins sem heitir Rakel skiptum með okkur vöktunum hennar Karen þar sem að Karen er að flytja á Bifröst. Vona að henni eigi eftir að ganga vel þar!

Fimmtudaginn 13 mars fer ég í páskafrí til Svíþjóðar =D
er komin með gistingu alla næturnar og keyrslu til og frá flugvellinum =)

Svo stærstu fréttirnar.. ég er að fara að flytja til Svíþjóðar!
Búin að bóka flug sunnudaginn 14 september.
Fyrir bæði mig og Wilmu litlu.
Matilda vinkona er búin að tala við yfirmann sinn um vinnu fyrir mig =)
er ég að fara að setja niður og skrifa honum mail.
Fæ vonandi að hafa Wilmu hjá Paulu vinkonu/yfirmanni =P


Annars er bara allt gott að frétta. Treysti mér ekki upp í hesthús í dag.. rosalega kallt og mikill vindur, ég er að verða þó nokkuð góð af kvefinu.
Svo fékk ég 96% rétt á bókfærslupróf sem ég tók í byrjun febrúar. fæ vonandi niðurstöður úr stærðfræðiprófinu í vikunni.


Kv. Ester

Komin heim.Ester/Þóra.

Þá var þessi vinnuhelgi búin.
var að koma heim.. ákvað að skella mér aðeins fyrir framan tölvuna áður en ég leggst upp í rúm.. komast aðeins niður á jörðina =P og fá sér smá smarties =D

búið að vera fínt kvöld, var niðri á veitingastað.. rólegt og fínt þar.. kláraði svo kvöldið fyrir hana Karen.. fékk það skemmtilega hlutverk að gera upp.. alltaf jafn gaman þegar það eru reikningar á nánast hvert einasta herbergi :S

skellti mér líka upp í hesthús í dag. í fyrsta skiptið í vetur var virkilega gaman.. allt gekk eins og í sögu.. bað hörð um að láta ör og skuggadís út í gerði þegar að hann myndi gefa svo að ég kæmist snemma á bak. það var ekkert vandamál og biðu þær eftir mér þar þegar ég kom rétt eftir 10 =)
byrjaði á ör, tók hana í tvítaum.. rosalega gaman.. ég er enn þá að læra á þetta en hún er alltaf svo skilningsrík =P  hún teigði sig vel fram og brokkið var svifmikið.. langt skrefið í henni á fetinu eins og alltaf =)
skuggadís er líka öll að koma til.. svolítið stessuð í byrjun.. þannig að ég lét hana brokka aðeins fyrst.. bara frá jörðinni (ég var á jörðinni og kvaddi hana áfram =P) hún er farin að brokka fínt undir sjálfum sér en tekur einstaka sinnum pínu skeið/tölt spor en þetta er allt að koma hjá henni. svo var það bara að kyssa ístöðinm, opinn og lokaður sniðgangur. þjálfaði bara á feti í dag.. ábeningar með sætinu meðal annars.. svaraði hún þessu öll fínt =)

svo fór ég til litlu prinsessunnar hennar silju. kemdi henni hátt og lágt á meðan hún borðað fóðurbætirinn sinn í stíunni.. ekkert mál. hún er algjör draumur. á fimmtudaginn var ég með þær allar þrjár út í gerði og var að reyna að ná skuggadís.. svo nennti ég ekki að elta hana lengur kom þá silja til mín og potaði svona aðeins í mig eins og hún væri að segja mér að skella bara mélinu upp í hana =P þannig að ég gerði það bar.. fannst henni þetta voðalega framandi, ekki búin að vera með beisli síðan í sumar.. en hún tók þessu með jafnageði þannig að ég ákvað nú bara að ná í tvítaumsgjörðina mína og skella henni á hana!
batt hana við gerðið (fyrsta skiptið bundin fyrir utan einu sinni með gúmmíkall) það var nú lítið mál.. svo var gjörðinni skellt á hana og hún hert!
svo fórum við í "göngutúr" um gerðið og hún fylgdi mér eins og skugginn.. herti svo á gjörðinni aftur eftir smá tíma.. lítið mál eins og vanalega.. skelli nú bara hnakknum á hana fljótlega =)

best að fara að drífa sig í háttinn svo að maður nenni upp í hesthús á morgun/ í dag =P

Kv. Ester

Hestaíþróttamót Fsu.Ester/Þóra.

Ég og Þóra skelltum okkur á Hestaíþróttamót Fsu sem var forkeppni fyrir Framhaldsskólamótið.
Skemmtilegt mót með mikið af góðum hestum.


Fjórganginn vann Eyvindur Hrannar.

Fimmganginn vann Hekla Katarína á Gídeon frá Lækjarbotnum með einkuninna 6,43. 

Töltið vann Hekla Katarína einnig á henni Nútið frá Skarði með einkuninna 7,50!

Skeiði vann svo Eyvindur Hrannar á Gára frá Auðsholtshjáleigu með tímann 6.55 sek.


Set inn úrslitin hérna fyrir neðan. =)


Annars er bara allt gott að frétta. Er að ná mér af flensunni.. loksins! 
Ætla að skella mér upp í hesthús á morgun =)
Taka nýjar myndir af skvísunum og setja hérna inn undir Hestarnir.
Svo á föstudaginn er ég að fara að vinna í morgunmatnum.. kl 07!


Úrslit 
Hestaíþrtóttamót Fsu.


Fjórgangur Úrslit.

1. Eyvindur Hrannar 
    6,47  (6,47)
2. Kristbjörg Arna
    Svali frá Feti
    6,34  (5,83)
3. Hekla Katarína
    Hrói frá Skeiðháholti
    6,23  (6,33)
4. Bergrún Ingólfsdóttir
    Aron frá Kálfholti
    6,13  (6,10)
5. Herdís Rútsdóttir
    Eldjárn frá Skíðbakka 1
    5,67  (5,73)


Fimmgangur Úrslit.

1. Hekla Katarína
    Gídeon frá Lækjarbotnum
    6,43  (5,57)
2. Eyvindur Hrannar
    Fákur frá Auðsholtshjáleigu
    5,74  (5,70)
3. Bergrún Ingólfsdóttir
    Mósart frá Miðfelli
    5,71  (5,37)
4. Hjörvar Ágústsson
    Kjarkur frá Ásmúla
    5,07  (5,23)


Tölt Úrslit.

1. Hekla Katarína
    Nútíð frá Skarði
    7,50  (7,07)
2. Ragnheiður Hrund
    Glíma frá Bakkakoti
    7,06  (6,83)
3. Eyvindur Hrannar
    6,83  (6,40)
4. Klara Sif
    Vafi frá Hvolsvelli
    6,06  (5,70)
5. María Dís
    Vild frá Hólum
    5,40  (5,94)


Skeið 100m

1. Eyvindur Hrannar
    Gári frá Auðsholtshjáleigu
   6.55 sek
2. Hekla Katarína
    Gídeon frá Lækjarbotnum
    7.13 sek
3. Guðni Guðjónsson
    Höttur frá Framnesi
    7.39 sek
4. Sandra Dögg Garðarsdóttir
    Baldursbrá frá Baldurshaga
    7,75 sek
5. Rúnar Guðlaugsson
    Eik frá Heiði
    8.17 sek

Er ekki með bestu myndavélin en ég set inn nokkrar myndir samt sem áður =)






Eyvindur Hrannar og Gári í skeiðinu.









Verðlaunaafhending í Fjórgangi.









Verðlaunaafhending í Tölti.


Kv. Ester

Flensa.Ester/Þóra.

Ligg núna heima í bölvaðri flensu!!
Þá skeður ekekrt sérlega mikið :S

Var að vinna á föstudaginn.. svo á laugardaginn kom stelpa til mín til að raka hrossin.. gekk það alveg rosalega vel. Silja kippti sig ekkert upp við hljóðinn í vélinni.. frekar að hún yrði aðeins pirruð á því að þurfa að stana kyrr. =P
Skuggadís stóð sig líka vel en var aðeins skelkaðari við vélina.
Svo var komin tími til að fara í vinnunna þannig að Hekla tók Örina sjálf.. rakaði hana og skipti faxinu =)
núna eru þær orðnar rosalega flottar allar saman.
um leið og ég hressist ætla ég að skella mér uppeftir og taka myndir af þeim skvísum =)

En er semsagt búin að ligga upp í rúmi síðan á sunnudaginn.. er orðin frekar þerytt á þessu!! farin að drekka engifer og hvítlauksvatn :S
það sem að maður lætur ofan í sig til að reyna að verða betri!
Þreif herberdið mitt hátt og lágt til að losna við allt rykið sem var að pirra mig ofan á allt annað og þvoði rúmfötin.
Ekki nóg með að ég sé veik heldur ældi litla Wilma mín áðan!

Kv.
Ester

10. febrúar. / 10. februari.Ester/Þóra.

Þá er þessi helgi að verða búin.

Ekki gert svo mikið, búið að vera alveg hundleiðinlegt veður..
en í gær þá þurfti ég ekki að vinna þannig að ég ákvað að fara með hana Wilmu litlu út í sveit og láta hana hlaupa aðeins.
Keyrði í átt að Þrastarlundi og hélt aðeins áfram þangað til ég kom að smá afleggara, ætlaði bara að leggja í kantinn en keyrði aðeins of langt og festi mig.
Það er nú ekki frásögu færandi nema hvað að ég náði að stoppa tvo bíla og komu 3 kallar sem ætluðu að hjálpa mér að ýta á bílinn, þegar ég ætla að setjast inn í bílinn er hurðinn læst!
Þá hafði litla Wilma verið svo ofboðslega gáfuð að læsa sjálfan sig inni með því að ýta á samlæsinguna sem er á milli sætanna, en því miður var hún ekki svo gáfuð að geta opnað hurðarnar aftur.
Þarna stíð ég hálfvandræaðaleg með þessum köllum.. sendi þá bara í burtu og ég hringdi í mömmu.
Þegar ég er búin að tala við mömmu stoppar eldri maður, hann spyr mig hvort að ég vilji fá lánaða skóflu til að moka aðeins frá dekkjunum og ég þakkaði það. Fór hann að moka undan dekkjunum og bílnum svo ákvað hann að reyna að draga bílinn upp á veg.. hafði ég skilið bílinn í gangi og var hann þess vegna í hlutlausum en í handbremsum.. en eins og ekkert var dró hann bílinn upp á veg. þarna stóð bílinn þversum á veginum og ekki gat ég sett varnarljósin á!
Skellti þá ekki þessi yndislegi eldri maður bílnum sínum fyrir framan minn og setti varnarljósin á sínum bíl á. Beið hann svo með mér þangað til að nágranninn kom með aukalykill! =D
Náði ég aldrei nafninu hans en þakka ég honum svo kærlega fyrir alla hjálpina.. alveg yndislegt en núna verður wilma sett í að læra að opna hurðir þjálfun! =D


Svo seinna um kvöldið var skellt sér til Hvergerðis en þar hélt hún Kristjana vinkona upp á 21 árs afmæli sitt.. Þar var drukkið og sungið langt fram á nótt!
Skemmtilegt kvöld! =D

Ætla að láta tvær myndir fylgja með.
Sú fyrsta er af mér þegar ég var búin að taka úr mér Afríkuflétturnar =)
Hin myndin er frá Kríumýri en ég og Þóra fórum þangað seinasta mánudag og smelltum af þessari skemmtilegu mynd af einu af útigangshrossi hans Harðar sem langaði ógurlega mikið í einn Ískaldan af barnum =D


Ester.
















Stormur. / Storm.Ester/Þóra.

Ætlaði að setjast niður áðan og skrifa eitthvað fínt blogg en þá kom bara þrumuveður! Slökkti á tölvunni og kveikti á kertum.
Er núna í fartölvunni.. en skrifa eitthvað almennilegt á morgun =P við erum alla vega enn þá á lífi =D

Ester.


/


Skulle sätta mig ner och skriva nån fin blog men då kom det åskväder!
Fick stänga av datorn och tände ljus.
Har nu satt på den bärbara datorn.. men jag skriver nån bra blog imorgon =P vi lever i alla fall allihop =D

Ester.

Ný meri. / Nytt sto.Ester/Þóra.

Þá var verið að fjárfesta í nýrri meri.

Aftur er það ættin og liturinn sem heillar =P
Hún heitir Spesía frá Steinkoti, verður nafninu líkleg breytt í Stjörnudís.
Hún er fædd 2007 og er brún, stjörnótt litförótt =)
Fyrir þá sem ekki vita þá breytir hún um lit þegar hún mun fella vetrarpelsinn, verður hún þá hvít.

Pappinn er Litfari frá Lækjarskógi sem er undan Toppi frá Eyjólfsstöðum en hann er Hrafnssonur frá Holtsmúla.
Móðir Litfara heitir Arabía frá Lækjarskógi, hún er undan Galdri frá Sauðárkróki og brúnlitförótti meri. Arabía er einnig brúnlitförótt.
Litfari er rauðlitföróttur, ósýndur alhliðahestur.

Mamman er Spes frá Steinkoti, unghryssa fædd 2004.
Hún er undan ungum Númasyni frá Þóroddsstöðum, sem er með 7.94 fyrir byggingu í kynbótadómi.
Móðir hennar er Erna frá Bolungarvík en hún er undan Sólon frá Hóli v/Dalvík sem er Náttfarasonur en Náttfari er undan Sörla frá Sauðárkróki.
Þokki frá Kýrholti og Huginn frá Haga eru báðir undan Sóloni en þeir eru báðir með yfir 9 í kynbótadómi fyrir hæfileika.

Læt fylga með mynd af merinni síðan í haust og líka mynd af pabba hennar.


Ester.


/


Då har man investerat i ett nytt sto.

Ingen så va det släkten och färgen som lockade =P
Hon heter Spesía frá Steinkoti, namnet ska vi nog förändra till Stjörnudís.
Hon är född 2007 och är brun, med stjärna färgväxlare =)
För er som inte vet vad färgväxlare betyder, så betyder det att när hon kommer tappa sin vinterpäls på våren blir hon vit på kroppen.

Hennes pappa är Litfari frá Lækjaskógi som är efter Toppur frá Eyjólfsstöðum, han är i sin tur efter Hrafn frá Holtsmúla.
Litfaris mamma är Arabía frá Lækjaskógi, hon är efter Galdur frá Sauðárkróki och ett färgväxlar sto. Arabía själv är också färgväxlare.
Litfari är röd färgväxlare, inte bedömd femgångare.

Spesías mamma är Spes frá Steinkoti, ett ungsto som är född 2004.
Hon är efter en ung son till Númi frá Þóroddsstöðum, han har fått 7.94 för byggnad í bedömning.
Spes mamma är Erna frá Bolungarvík, hon är undan Sólon frá Hóli v/Dalvík. Sólon är son till Náttfari frá Ytra-Dalsgerði som i sin tur är son till Sörli frá Sauðárkróki.
Bådet Þokki frá Kýrholti och Huginn frá Haga som har över 9 för ridegenskaper i bedömning är söner till Sólon frá Hóli v/Dalvík.

Spesía beräknade Blup är 104.

Låter följa med bilder av hennes om er dagen nu i höstas och bild av hennes pappa i tölt.


Ester.








Stóðhestar fyrir sumarið. / Hingstar för sommaren.Ester/Þóra.

Þá er maður byrjaður að hringa í alla stóðhestaeigendur.. alla þá sem ég vil nota næsta sumar =P

Í kvöld var það ákveðið að Ör verður send í sundþjálfun á meðan ég verð í Svíþjóð yfir páskana, um miðjan mars =) hann Hörður, sá sem ég leigi hjá ætlar að tala við félaga sinn sem rekur sundstöð hérna fyrir austan.

Svo þarf ég að tala við eina konu sem ég talaði við í desember um að hún gæti athugað hvort maðurinn hennar væri jafnvel til í að sýna hana Ör mína núna í maí.

Svo eftir Landsmót fer Ör til Hruna frá Breiðumörk =)
Er líka búin að panta toll fyrir Silju, fer hún undir Glym frá Innri-Skeljabrekku, ætla samt fyrst að ræða það við Önnu Kvist áður en það verður ákveðið endanlega þarf sem við eigum hana saman =) en Svanhildur sagði að það væri lítið mál, er allavega komin á listann =)
Svo þar sem að ég er búin að ákveða mig um að flytja til Svíþjóðar næsta haust mun ég ekki fara á hestabrautina hjá Fsu næsta vetur. Var að tala við James áðan um það þar sem að ég átti að fá Flautu og hafa hana sem nemandahest eftir áramót en þar sem að ekkert verður úr því lagði ég fram þá hugmynd að eftir að hún er komin með dóm næsta vor að hún fari til Glampa frá Vatnsleysu!
Einnig erum við að kíkja eftir stóðhesti handa henni Skuggadís, langar að setja hana undir einhvern klárhest sem er med flottan lit, góðan dóm og skemmtilega ætt. 

Setti myndir inn af stóðhestunum sem stelpurnar munu líklega fara undir næsta sumar. Byrja á Hruna frá Breiðumörk, þá kemur mynd af Glym frá Innri-Skeljabrekku og síðast en ekki síst mynd af Glampa gamla frá Vatnsleysu!

Læt þetta duga í bili =)

Ester.


/





Nu har jag börjat ringa runt till alla hingstägare.. iaf dom som jag vill använda på mina ston nästa sommar=P

Ikväll blev det oxå bestämt att Ör kommer skickas simträning medans jag e på besök i sverige i mitten av mars =)

Sen måste jag ringa till en tjej som jag prata med i desember om att hennes kille kunde nog visa Ör på bedömning nu till våren.

Sen efter Landsmót åker Ör till Hruni frá Breiðumörk.
Har oxå beställt en hingst till Silja, hon kommer åka till Glymur frá Innri-Skeljabrekku, ska först prata med Anna Kvist om det eftersom vi äger henne tillsammans men Svanhildur som kommer ha honom nästa sommar sa att det inte va några problem.. så jag e inne på listan =)

Har lagt in bilder på hingstarna här nedanför.
Först är det ett kort på Hruni frá Breiðumörk.
Sen kommer det en på Glymur frá Innri-Skeljabrekku.
Senast men inte sist kort pa Glampi "gamle" frá Vatnsleysu.

Ester.



















 








Klukkan

Leit

Prófíll

  • Nafn: Ester/Þóra.
  • Staður: Selfoss
  • Atvinna: Ester: Er að vinna sem þjónn á Hotel Selfoss. Var að byrja aftur í Framhaldsskóla í Fsu./ Þóra: Er á félagsfræðibraut í Fsu og er að vinna í Europris.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...